Hreinsunarátak 7.-21. maí
Árlegt hreinsunarátak Garðabæjar fer fram dagana 7.-21. maí nk. sem er aðeins seinna en undanfarin ár vegna stöðunnar í þjóðfélaginu. Vorhreinsun lóða í hverfum bæjarins fer fram dagana 11.-22. maí nk.
-
Hreinsunarátak Garðabæjar
Árlegt hreinsunarátak Garðabæjar fer fram dagana 7.-21. maí nk. sem er aðeins seinna en undanfarin ár vegna stöðunnar í þjóðfélaginu. Hópar geta sótt um að vera með í hreinsunarátakinu og fá úthlutuð svæði til að hreinsa í sínu nærumhverfi. Vorhreinsun lóða í hverfum bæjarins verður á svipuðum tíma og í fyrra þ.e. síðari hluta maí mánaðar eða frá 11.-22. maí nk.
Hreinsunarátak Garðabæjar 7.-21. maí
Nágrannar, íbúasamtök, félagasamtök, íþróttafélög og skólar eru hvattir til að taka þátt í hreinsunarátaki Garðabæjar sem verður dagana 7.-21. maí nk. Hópar sem vilja taka þátt í að hreinsa svæði í sínu nærumhverfi sitt geta sótt um þátttöku og fengið styrk í fjáröflunarskyni eða til að halda grillveislu í lok góðrar tiltektar. Hópar geta haft samband við verkefnastjóra garðyrkjudeildar, s. 820 8574, lindajo@gardabaer.is.
Íbúar eru hvattir til að sýna gott fordæmi með því að taka nærumhverfi í fóstur og hlúa að því. Starfsmenn bæjarins munu hirða upp alla poka og annað eftir ruslatínslu bæjarbúa, hópa eða einstaklinga. Hægt er að nálgast poka í áhaldahúsinu við Lyngás 18 og þátttakendur eru hvattir til að flokka plast sérstaklega frá öðru rusli í glæran plastpoka.
Athugið: Vegna samkomubanns þarf að fylgja gildandi reglum um fjölda í hóp og fjarlægð á milli þátttakenda í hreinsunarátakinu.
Vorhreinsun lóða 11.-22. maí
Garðbæingar eru hvattir til að hreinsa lóðir sínar í sameiginlegu átaki dagana 11-22. maí. Starfsmenn bæjarins og verktakar verða á ferðinni þessa daga og hirða garðúrgang sem settur hefur verið út fyrir lóðamörk.
Temdu þér umhverfisvænan lífstíl með því að setja garðaúrgang í safnhaug í stað plastpoka. Allt sem til fellur í garðinum yfir sumarið ætti að fara til moltugerðar.
Hreinsun á garðúrgangi:
11-13. maí | Flatir, Ásgarður, Fitjar, Hólar, Ásar, Grundir, Sjáland, Arnarnes, Akrar, Vífilsstaðir, Urriðaholt |
14.-18. maí | Tún, Mýrar, Garðatorg, Móar, Byggðir, Lundir, Búðir, Bæjagil, Hæðahverfi, Hnoðraholt |
19.-22. maí | Álftanes, Garðahverfi, Prýði, Hleinar og v. Álftanesveg |
Tökum öll þátt í að halda bænum okkar snyrtilegum!