4. apr. 2023

Höfuðborgarsvæðið markaðsett sem einn áfangastaður

Í gær, 3. apríl 2023 var Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins stofnuð eftir tveggja ára undirbúning.

  • Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins stofnuð.
    Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins stofnuð.

Í gær, 3. apríl 2023 var Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins stofnuð eftir tveggja ára undirbúning. Markaðsstofan verður áfangastaðastofa fyrir höfuðborgarsvæðið allt og eru stofnaðilar Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH) og Ferðamálasamtök höfuðborgarsvæðisins. Markaðsstofan verður vettvangur til að markaðsetja og þróa áfangastaðinn höfuðborgarsvæðið í heild og ná þannig betri árangri. 

Samhliða stofnfundi verður áfangastaðaáætlun höfuðborgarsvæðisins birt en áfangstaðaáætlun  er sameiginleg stefnuyfirlýsing sem hefur það að markmiði að stýra uppbyggingu og þróun svæðis yfir ákveðinn tíma, skilgreina hlutverk hagsmunaaðila, tiltaka beinar aðgerðir sem hver og einn hagsmunaaðili ber ábyrgð á og hvaða bjargir/auðlindir þeir hyggjast nýta við þá vinnu. Er þetta í fyrsta skipti sem gerð er áfangastaðaáætlun fyrir höfuðborgarsvæðið.

Nánari upplýsingar um markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins má finna hér á vef SSH.