28. júl. 2022

Hinsegin viðburðir í Garðabæ

Í tilefni hinsegin daga í byrjun ágúst verður boðið upp á viðburði á Bókasafni Garðabæjar og Hönnunarsafni Íslands. Söfnin verða skreytt regnbogafánum og hinsegin bókmenntir verða áberandi á bókasafninu.

Viðburður á facebook-síðu Bókasafns Garðabæjar.

Þátttaka er ókeypis og öll hjartanlega velkomin að fagna fjölbreytileikanum í tilefni hinsegin daga

Samstarf við Samtökin ´78

Fyrr í sumar samþykkti bæjarráð Garðabæjar að ganga til viðræðna við Samtökin ‘78 um samstarfssamning. Markmiðið með slíkum samning er að stórefla hinsegin fræðslu og meðvitund um hinsegin málefni í sveitarfélaginu en á sama tíma að styðja við það fræðslustarf um hinsegin málefni sem nú þegar er unnið á vinnustöðum og skólum Garðabæjar. Jafnframt verði horft til gildandi jafnréttisstefnu bæjarins og metið hvort og þá að hvaða leyti hún geti ýtt betur undir fjölbreytileika og styrkt stöðu hinsegin fólks og annarra hópa sem geta átt undir högg að sækja stöðu sinnar vegna.

Sjá nánar í frétt hér á vef Garðabæjar.