23. sep. 2019

Heitavatnslaust á Álftanesi að hluta

Vegna tengingar á nýrri lögn verður heitavatnslaust í Breiðumýri, Asparholti og Birkiholti á Álftanesi mán. 23. september kl. 09:00-15:00. Álftaneslaug verður lokuð á meðan.

  • Veitur
    Veitur

Vegna tengingar á nýrri lögn verður heitavatnslaust í Breiðumýri, Asparholti og Birkiholti á Álftanesi mán. 23. september kl. 09:00-15:00 samkvæmt tilkynningu frá Veitum.  Sjá nánari upplýsingar á vef Veitna. 

Fólki er bent á að hafa skrúfað fyrir alla heitavatnskrana til að draga úr hættu á slysi eða tjóni þegar vatnið kemst á að nýju. Í kuldatíð er ráðlegt að hafa glugga lokaða og útidyr ekki opnar lengur en þörf krefur til að koma í veg fyrir að það kólni.

Vegna þessa verður lokað í Álftaneslaug í dag frá kl. 09 og frameftir degi og ekki hægt að fara í sturtur á staðnum.