13. des. 2019

Góð mæting á kynningarfund um skipulag Vífilsstaðalands

Góð mæting var á kynningarfund um skipulagsmál Vífilsstaðalands og umhverfis miðvikudaginn 11. desember sl. 

  • Kynningarfundur um skipulagsmál Vífilsstaðalands
    Kynningarfundur um skipulagsmál Vífilsstaðalands

Góð mæting var á kynningarfund um skipulagsmál Vífilsstaðalands og umhverfis miðvikudaginn 11. desember sl.  Fundurinn fór fram í fundarsal Sveinatungu og hafði verið frestað um sólarhring vegna óveðursins sem gekk yfir höfuðborgarsvæðið á þriðjudaginn. 

Kynningarfundurinn var haldinn í tilefni af auglýstri tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030, Vífilsstaðaland, þróunarsvæðis B, og  auglýstum tillögum að þremur deiliskipulagsáætlunum innan þess svæðis sem aðalskipulagsbreytingin nær til.

Á fundinum fóru skipulagsráðgjafar frá Batteríinu, Eflu og Landslagi yfir tillögurnar. Hægt er að senda inn ábendingar til 6. janúar 2020 á skipulag@gardabaer.is

Glærukynningar frá fundinum má nálgast hér ásamt öðrum gögnum í auglýsingu um skipulagið. 


Kynningarfundur um skipulagsmál Vífilsstaðalands