24. apr. 2023

Garðabær tekur á móti allt að 180 flóttamönnum

Garðabær tekur á móti allt að 180 flóttamönnum samkvæmt samningi sem Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, og Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar, undirrituðu í dag. 

  • Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, og Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar.
    Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, og Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar.

Garðabær tekur á móti allt að 180 flóttamönnum samkvæmt samningi sem Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, og Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar, undirrituðu í dag. Þetta er ellefti samningurinn sem gerður er um samræmda móttöku flóttafólks síðan í nóvember síðastliðinn. Stór hluti hópsins sem fellur undir samninginn milli Garðabæjar og ráðuneytisins er nú þegar búsettur í Garðabæ. 

Samræmd móttaka flóttafólks nær til fólks sem fengið hefur alþjóðlega vernd eða dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða hér á landi. Markmiðið er að tryggja flóttafólki samfellda og jafna þjónustu óháð því hvaðan það kemur og í hvaða sveitarfélagi það sest að.

Undirritun samningsins felur í sér að sveitarfélagið (þ.e. móttökusveitarfélag) fær inn fjármagn frá ríkinu til þess að veita flóttafólki, sem nú þegar býr í Garðabæ og sem kemur til með að flytja í bæinn á næstu mánuðum, viðeigandi stuðning og félagslega þjónustu. Þennan stuðning hefur fjölskyldusvið Garðabæjar verið að veita, en án fjárstuðnings frá ríkinu. Almennt hefur flóttafólk ríkar þjónustuþarfir sem mikilvægt er að mæta með festu og framsýn. Skilvirk þjónusta og stuðningur við flóttafólk felur í sér árangursríka inngildingu til framtíðar. 

Aldrei hafa fleiri komið til landsins á flótta en nú í ár og í fyrra. Frá áramótum hafa 1.730 manns sótt um alþjóðlega vernd hér á landi, þar af nærri 350 börn. Margir umsækjendur koma frá Úkraínu en hingað leitar einnig fólk víða annars staðar frá í leit að alþjóðlegri vernd, svo sem frá Venesúela, Palestínu og Sýrlandi.

„Við viljum taka vel á móti flóttafólki og okkur hefur gengið vel í Garðabæ að halda utan um hópinn sem svo sannarlega auðgar samfélagið okkar. Það er mikilvægt að móttaka flóttafólks sé samræmd og þessi samningur rammar vel inn þetta mikilvæga verkefni ,“ segir Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar. „Við höfum tekið á móti fjölmörgum börnum á flótta sem er mjög viðkvæmur hópur sem þarf að hlúa vel að og þörf þeirra fyrir þjónustu er mikil. Við teljum nauðsynlegt að sveitarfélög vinni nánar með ríkinu og staðið sé vel að þeirri umgjörð.“

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, fagnar því að Garðabær bætist í stækkandi hóp sveitarfélaga sem undirritað hafa samning um móttöku flóttafólks. „Það er gleðiefni að fá Garðabæ inn í þetta þýðingarmikla verkefni. Ég óska bæjarbúum öllum til hamingju og nýjum íbúum farsældar.

Samraemd-mottaka-flottafolks