3. nóv. 2021

Fyrsti áfangi í Vetrarmýri í uppbyggingu

Íslandsbanki, fyrir hönd Garðabæjar, auglýsir nú til sölu byggingarrétt fyrir fjölbýlis- og atvinnuhúsnæði á fimm aðskildum byggingarreitum við Vetrarmýri í Garðabæ.

  • Vetrarmyri_grafisk_loftmynd

Vetrarmýri er 20 hektara byggingaland, að fullu í eigu Garðabæjar, sem markast af Hnoðraholti til norðurs, Reykjanesbraut til vesturs, Vífilsstaðavegi til suðurs og golfvelli GKG til austurs.

Áætluð heildarstærð byggðar í Vetrarmýri er um 66.000 fermetrar af fjölbýli og 36.000 fermetrar af atvinnuhúsnæði með 664 íbúðum að hámarki. Í þessum fyrsta áfanga eru boðnir út u.þ.b. 26.000 fermetrar af fjölbýli og 26.000 fermetrar af atvinnuhúsnæði á fimm aðskildum reitum auk möguleika fyrir bjóðendur í atvinnuhúsnæði að bjóða í bílastæðahús við Reykjanesbraut.

Samgöngumiðað svæði í nálægð við náttúruperlur

Vetrarmýri er eitt af þremur fyrirhuguðum uppbyggingarsvæðum á Vífilsstaðalandi. Við gerð deiliskipulagsins var horft til góðra tenginga við stofnbrautina Reykjanesbraut, almenningssamgöngur og göngu- og hjólastíga og nálægðar við útivistarperlur. Auk þess er aðgengi að nálægri samfélagsþjónustu eins og skólum, leikskólum, íþróttamannvirkjum o.fl. mjög gott. 

Upplýsingar um deiliskipulag og uppbyggingu svæðisins ásamt sölugögnum má nálgast í auglýsingu hér á vef Garðabæjar.