26. jún. 2020

Friðlýsing Búrfellsgjár og nágrennis

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra undirritaði friðlýsingu Búrfells, Búrfellsgjár, Selgjár og nágrennis ofan Garðabæjar í gær, fimmtudaginn 25. júní. Svæðið  er mjög gott dæmi um jarðmyndanir sem eru sérstakar á landsvísu og innan svæðisins er talsvert af menningarminjum.

  • Búrfell og umhverfi friðlýst
    Haldið í fræðslugöngu um Búrfellsgjá og á Búrfell. (Mynd frá Umhverfisráðuneytingu)

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra undirritaði friðlýsingu Búrfells, Búrfellsgjár, Selgjár og nágrennis ofan Garðabæjar í gær, fimmtudaginn 25. júní.  Undirritunin fór fram í fræðslugöngu um svæðið sem Ferðafélag Íslands skipulagði undir leiðsögn Snæbjörns Guðmundssonar jarðfræðings. Búrfellsgjá og umhverfi hennar er vinsæl útivistarparadís í túnfæti höfuðborgarsvæðisins þar sem ungir sem aldnir geta meðal annars gengið, skokkað, hjólað og riðið út í stórbrotnu landslagi.

„Þetta er svæði er stórkostleg náttúruperla og eins og kennslubók í jarðfræði. Það felast í því mikil lífsgæði að eiga slíka útivistarparadís í bakgarði höfuðborgarsvæðisins og hingað er gott að koma og hlaða batteríin. Enda nýta sér mörg svæðið til útivistar og fjölbreyttrar hreyfingar. Mér finnst Garðbæingar eiga hrós skilið fyrir loftsvert frumkvæði þegar kemur að friðlýsingum og með þessari ákvörðun verndum við svæðið fyrir komandi kynslóðir til að njóta.“ sagði Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra áður en haldið var af stað í gönguna. Jóna Sæmundsdóttir, formaður umhverfisnefndar Garðabæjar, lýsti yfir ánægju með friðlýsinguna og þeirri áherslu sem Garðabær hefur lagt á að friðlýsa svæði innan bæjarlandsins en nú þegar er hátt í 40 % af landi Garðabæjar friðlýst. 

Búrfell og umhverfi friðlýstBúrfell og umhverfi friðlýst

Búrfell og umhverfi friðlýst

Búrfell og umhverfi friðlýstHópur fólks tók þátt í fræðslugöngunni í gær en í henni voru m.a. fulltrúar Garðabæjar, landeigenda, Umhverfis- og auðlindaráðuneytis og Umhverfisstofnunar.

Um Búrfell og nágrenni

Búrfellsgjá varð til í miklu eldgosi fyrir um átta þúsund árum í litlum eldgíg, sem nefnist Búrfell. Í eldgosinu flæddi hraun úr gígnum niður á láglendið og út í sjó. Hraunin í miðbæ Hafnarfjarðar, Garðabæ og Gálgahraun á Álftanesi eiga þannig öll uppruna sinn í Búrfelli og Búrfellsgjá.
Svæðið er mjög gott dæmi um jarðmyndanir sem eru sérstakar á landsvísu og hafa hátt vísinda- og fræðslugildi. Búrfell og hrauntraðir frá gígnum, gjárnar og misgengi eru mjög áberandi í landi. Innan svæðisins er einnig talsvert af menningarminjum s.s. fjárrétt og seljarústir sem telja má einstakar í sinni röð, byggðar við gjárbarmana með baðstofum, eldhúsi, kvíum og stekkjum.

Búrfell og umhverfi friðlýst

Búrfell

Búrfell og umhverfi friðlýst

Búrfell og umhverfi friðlýstFræðsluskilti og stígar

Við Heiðmerkurveg er nýlegt bílastæði þar sem hægt er að leggja bílum fyrir þá sem vilja ganga um nágrenni Búrfells, Búrfellsgjár og Selgjár. Við bílastæðið er fræðsluskilti um Selgjá og annað fræðsluskilti örlitlu austar um Búrfellsgjá áður en gengið er niður tréstiga að aðalgönguleiðinni í austurátt.

Burfell_fridlysing_250620-13-

Burfell_fridlysing_250620-22-