17. maí 2023

Fjölskyldusvið Garðabæjar leitar að húsnæði til leigu

Leitað er að stúdíóíbúðum, tveggja og þriggja herbergja íbúðum svo og herbergjum með aðgangi að eldhúsi og baðherbergi.

  • Séð yfir Garðabæ

Fjölskyldusvið Garðabæjar leitar að leiguhúsnæði fyrir einstaklinga og fjölskyldur í viðkvæmri stöðu. Leitað er að stúdíóíbúðum, tveggja og þriggja herbergja íbúðum svo og herbergjum með aðgangi að eldhúsi og baðherbergi.

Ef þú hefur húsnæði til leigu, vinsamlegast hafðu samband við Guðrúnu Jónsdóttur á netfangið gudrunjonsd@gardabaer.is