8. apr. 2022

Fjölskyldufjör í lok Barnamenningarhátíðar í Garðabæ, laugardaginn 9. apríl

Barnamenningarhátíð í Garðabæ lýkur laugardaginn 9. apríl með fjöri, sköpun og gleði fyrir alla fjölskylduna. Dagskráin er ókeypis og fer fram í glerhýsum á Garðatorgi, í Hönnunarsafni Íslands og á Bókasafni Garðabæjar

 

 

Barnamenningarhátíð í Garðabæ lýkur laugardaginn 9. apríl með fjöri, sköpun og gleði fyrir alla fjölskylduna. Dagskráin er ókeypis og fer fram í glerhýsum á Garðatorgi, í Hönnunarsafni Íslands og á Bókasafni Garðabæjar.

Dagskráin hefst á Bókasafni Garðabæjar klukkan 12 með klippismiðju sem myndlistarkonan Hrund Atladóttir leiðir en á sama tíma verður hægt að búa til skip úr pappakössum og fleira endurnýtanlegu efni og velta fyrir sér hvernig var að vera barn á landnámsöld á leið til Íslands með skipi. Það eru myndlistarkonurnar Rakel Andrésdóttir og Salka Rósinkranz sem leiða skipasmiðjuna sem fer fram á yfirbyggðu torginu við hlið apóteksins. Klippismiðjan á Bókasafninu og skipasmiðjan á Garðatorgi 4 standa frá 12-14 en kl. 13:30 verður húllað með Húlladúllunni á Garðatorgi 7, í yfirbyggingunni við Bókasafnið. Gestir geta prófað húllahringi og dáðst að færni Húlladúllunar sem leiðbeinir einnig svo allir geti orðið húllameistarar!

Dagskráin á Hönnunarsafninu stendur frá 13-15 en fjölskyldum er boðið í sundfjör á sýningunni Sund en leikir og þrautir gera sýninguna enn skemmtilegri fyrir allan aldur. Þá verður í Smiðju Hönnunarsafnsins Regnbogasmiðja sem hefst kl. 13 en Dagrún Ósk Jónsdóttir þjóðfræðingur ræðir drauma og hjátrú tengda regnbogum en Ásgerður Heimisdóttur hönnuður leiðir smiðju þar sem regnbogatilraunir verða gerðar með geisladiskum sem síðan eru hengdir í trén á Garðatorgi og senda góðar óskir og kveðjur út í alheiminn.

Á Hönnunarsafninu geta gestir skoðað sýninguna Sund en einnig farið í Sýndarsund sem er sýndarveruleikasýning á jarðhæð safnsins en verkið Sýndarsund er eftir Hrund Atladóttur myndlistarmann. Þá stendur yfir sýning á teikningum leikskólabarna, Kynjaverur, á Bókasafni Garðabæjar og á Garðatorgi 1 stendur yfir sýningin Furðulaugar sem er afrakstur vinnu með 3. og 4. bekkingum en unnið var eftir hugmyndum Rán Flygenring.

Vikuna 4. – 8. apríl fór fram dagskrá fyrir skólahópa og alls tóku nærri 1000 börn þátt í skapandi dagskrá á Hönnunarsafninu, á Garðatorgi og í Bókasafni Garðabæjar.

Dagskráin 9. apríl er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir að njóta, skapa og hafa gaman í Garðabæ.