18. nóv. 2022

Evrópsk Nýtnivika -fataskiptimarkaður

Dagana 19.-27. nóvember næstkomandi stendur evrópsk Nýtnivika yfir en markmið átaksins er að hvetja fólk til að draga úr óþarfa neyslu, nýta hluti betur og draga þannig úr myndun úrgangs.

  • Nýtnivika 2022
    Nýtnivika 2022

Dagana 19.-27. nóvember næstkomandi stendur evrópsk Nýtnivika yfir en markmið átaksins er að hvetja fólk til að draga úr óþarfa neyslu, nýta hluti betur og draga þannig úr myndun úrgangs.

Þema ársins er sjálfbærni og hringrás textíls undir slagorðinu Sóun er ekki lengur í tísku! Textíliðnaðurinn er einn sá umfangsmesti í heimi og honum fylgir gríðarleg efnanotkun, ferskvatnsmengun og losun gróðurhúsalofttegunda svo það skiptir miklu að draga úr sóun textíls.

Í tilefni Nýtnivikunnar eru sveitarfélög, fyrirtæki, stofnanir, skólar og almenningur hvött til þess að fræðast um umhverfisáhrif textíls og leggja sitt af mörkum til að skapa hringrásarhagkerfi textíls í samfélaginu. 

Fataskiptimarkaður á Bókasafni Garðabæjar

Í tilefni vikunnar ætlar Bókasafn Garðabæjar að bjóða upp á fataskiptimarkað dagana 21. - 23. nóvember. Nánari upplýsingar má finna hér.