9. mar. 2022

Engar skemmdir á Miðgarði

Vegna frétta um vatn umhverfis Miðgarð er rétt að láta vita af því að engar eða sáralitlar skemmdir urðu á Miðgarði vegna þess og hefur starfsemi hússins ekki raskast á neinn hátt. Allar íþróttaæfingar eru á áætlun í húsinu.

  • Miðgarður í Vetrarmýri
    Miðgarður í Vetrarmýri

Vegna frétta um vatn umhverfis Miðgarð er rétt að láta vita af því að engar eða sáralitlar skemmdir urðu á Miðgarði vegna þess og hefur starfsemi hússins ekki raskast á neinn hátt. Allar íþróttaæfingar eru á áætlun í húsinu.

Mikið vatn safnaðist saman fyrirframan húsið í gær, þriðjudag vegna margra samverkandi þátta. Vegna veðurs og mikilla leysinga rann vatn niður úr hlíðum Kópavogs, niður golfvöllinn og safnaðist saman á nokkrum klukkutímum. Gatnakerfið á svæðinu ásamt móttökukerfum eru enn í vinnslu enda um nýtt hverfi að ræða.

Starfsmenn bæjarins brugðust hratt við, unnu hart að því að dæla vatni frá í alla nótt og bjarga skemmdum, og eru þeim færðar miklar þakkir fyrir. Þá verður farið í mótvægisaðgerðir til að tryggja að vatnið komist sína leið næst þegar slíkt veður kemur.