Endurtalningu lokið - sama niðurstaða
Miðvikudaginn 18. maí 2022 fór fram endurtalning í Garðabæ á atkvæðum úr sveitarstjórnarkosningunum sem fram fóru sl. laugardag. Farið var yfir flokkun á öllum atkvæðum og hvert einasta atkvæði talið upp á nýtt. Atkvæðafjöldinn skiptist með nákvæmlega sama hætti milli flokka í endurtalningunni og í upphaflegri talningu.
-
Séð yfir Garðabæ
Miðvikudaginn 18. maí 2022 fór fram endurtalning í Garðabæ á atkvæðum úr sveitarstjórnarkosningunum sem fram fóru sl. laugardag. Yfirkjörstjórn Garðabæjar samþykkti endurtalningu í tilefni af erindi Garðabæjarlistans, þar sem farið var fram á endurtalningu atkvæða vegna þess hve litlu munaði á atkvæðafjölda á sjöunda manni inn í bæjarstjórn í sveitarstjórnarkosningum sem fram fóru laugardaginn 14. maí sl.
Endurtalningin fór fram í fundarsal Sveinatungu við Garðatorg 7 og viðstaddir voru umboðsmenn flokka sem voru í framboði í Garðabæ. Farið var yfir flokkun á öllum atkvæðum og hvert einasta atkvæði talið upp á nýtt. Atkvæðafjöldinn skiptist með nákvæmlega sama hætti milli flokka í endurtalningunni og í upphaflegri talningu.
Formaður kjörstjórnar, Soffía Eydís Björgvinsdóttir, færði talningarmönnum sem og öllum sem komu að framkvæmd talningar bestu þakkir fyrir fagleg vinnubrögð.
Niðurstaða sú sama við endurtalningu atkvæða
Fjögur framboð fengu fulltrúa kjörna í bæjarstjórn:
D-listi Sjálfstæðisflokksins fékk 7 fulltrúa,
G-listi Garðabæjarlistans fékk 2 fulltrúa,
C-listi Viðreisnar fékk 1 fulltrúa
B-listi Framsóknarflokks 1 fulltrúa
Lokatölurnar voru eftirfarandi:
Alls greidd atkvæði voru 8733, alls voru á kjörskrá 13 622. Kjörsókn í Garðabæ var 64,1% sem er örlítið minni kosningaþátttaka en árið 2018 (67%).
Sjá einnig frétt um kjörsókn yfir daginn hér.
Atkvæði féllu þannig | |
---|---|
B-listi Framsóknarflokksins | 1116 |
C-listi Viðreisnar | 1134 |
D-listi Sjálfstæðisflokksins | 4197 |
G-listi Garðabæjarlistans | 1787 |
M-listi Miðflokksins | 314 |
Auðir seðlar | 145 |
Ógildir | 40 |