Dagskrá Jazzþorpsins í Garðabæ
Jazzþorpið í Garðabæ 3.- 5. maí 2024
Aðgangur í Jazzþorpið er ókeypis og öll velkomin.
Föstudagur 3. maí
Kl. 18
Opnun Jazzþorpins á litla sviði
-
Jazzþorpið sett af bæjarstjóra, Almari Guðmundssyni ásamt þorpsfógetanum Ómari Guðjónssyni.
Píanótríó jazzmeistara Þóris Baldurssonar.
- Þeir Bjarni Sveinbjörnsson á bassa og Fúsi Óttarsson á trommur koma fram með Þóri.
Jazzveitingasala opnar, jazzplötubúð, antik hljóðfærahús og gítarsmiður.
- Kósístofur Góða hirðisins bjóða gesti velkomna til að dvelja vel og lengi í Jazzþorpinu 2024.
Kl. 20
Los Bomboneros
-
Latinhljómsveit sem kemur öllum Garðbæingum og gestum þeirra í réttu föstujazzstemninguna með tónleikum á stóra sviðinu.
-
Fram koma: Alexandra Kjeld á kontrabassa og söng, Daníel Helgason á tresgítar og rafgítar, Kristofer Rodriguez Svönuson á slagverk, Sigrún Kristbjörg Jónsdóttir á básúnu og fiðlu,Tumi Torfason á trompet, Sólveig Morávek á flautu og klarinett og Matthías Hemstock á slagverk.
Kl. 22
DJ - Ingibjörg Elsa Turchi
- Jazzstjarnan spilar víniljazzplötur á litla sviði í lok kvölds.
Laugardagur 4. maí
Kl. 11
Þorpið opnar, dagskrá frá kl. 12 – 18:30 á litla sviði
- Jazzkaffi og kruðerí, Kristinn Soð reiðir fram jazzmat, jazzdrykkir og kósíheit áður en dagskrá hefst. Gítarsmiður og hljóðfærabúð ásamt Lucky Records taka vel á móti áhugasömum.
Kl. 12
Kári Egilsson tríó
- Einn fremsti jazzpíanisti ungu kynslóðarinnar kemur fram með píanotríó sínu. Ásamt Kára leika þeir Matthías MD Hemstock á trommur og Nico Moreaux á kontrabassa.
Kl. 13
Sunna Gunnlaugs tríó
- Píanótríó Sunnu leikur tónlist sína fyrir gesti þorpsins en þau hefja Evróputúr sinn í Garðabæ! Með Sunnu leika þeir Scott Mclemore á trommur og Þorgrímur Jónsson á kontrabassa.
Kl. 14
Magnús Jóhann & Óskar Guðjónsson
- Heitir úr hljóðveri og kynna fyrir þorpsgestum nýja afurð sem mun líta dagsins ljós í haust.
Kl. 15:30
Jazzspjall með Vernharði Linnett
- Vernharður segir okkur góðar skemmtisögur af frægum erlendum jazzstjörnum sem komu fram á Íslandi á seinni hluta síðustu aldar.
Kl. 18
Jazz-gettu-betur
- Jazzarar láta reyna á sína jazzvisku.
Kl. 20 á stóra sviði
Ragnheiður Gröndal og Árabátanir - Konur og upphaf sveiflunnar
- Tónlist sem allir þekkja frá miðbiki síðustu aldar þegar fyrstu sveiflu-söngkonurnar litu dagsins ljós á Íslandi. Tónlist sem yljar, gleður og lyftir andanum.
- Með Ragnheiði verða þeir Guðmundur Pétursson á gítar, Haukur Gröndal á saxófón Birgir Steinn Theodórsson á kontrabassa og Erik Quick á trommur.
Kl. 22 á litla sviði
DJ-Ingibjörg Elsa Turchi
- Víniljazzplötum þeytt af bassaleikaranum.
Jazzþorpið í Garðabæ í fyrra
Sunnudagur 5. maí – Chet Baker dagurinn
Kl. 11
Þorpið opnar. Veitingasala og búðir, dagskrá á litla sviði frá 12-18:30
Kl. 12
Silva og Steini flytja Chet Baker með sínu nefi
- Með þeim til halds og traust verða þeir Andri Ólafsson á kontrabassa og Matthías MD Hemstock á trommur.
Kl. 14.30
Jazzspjall með Steingrími Teague
- Líf og list Chet Baker.
Kl. 15:30
Ungir jazza
- Nemendur Tónlistarskóla Garðabæjar koma fram.
Kl. 18
Úrslit Jazz-gettu-betur
Kl. 20 á stóra sviði
Bríet, GDRN, KK og Sigríður Thorlacius syngja Chet Baker ásamt hljómsveit Tómasar R.
- Í hljómsveit Tómasar verða þeir Eyþór Gunnarsson á píanó, Snorri Sigurðarson á trompet og Magnús Tryggvason Elíassen á trommur
Góði hirðirinn er í samstarfi við Jazzþorpið í Garðabæ. Öll húsgögn og smámunir til sölu. Náttúruvín frá Vínstúkan Tíu Sopar, Kraftbjór frá Mói Ölgerðarfélag, Jazzkaffi frá Te&kaffi, Kristinn soð reiðir fram lauféttan mat. Lucky Records jazzplötubúð. Gítarsmiður að störfum og Antik hljóðfærabúð.