22. mar. 2019

Bæjarstjórn fundaði í Sveinatungu

Bæjarstjórn Garðabæjar fundaði í Sveinatungu í fyrsta sinn í gær, fimmtudaginn 21. mars. Sveinatunga er heitið á nýjum fjölnota fundarsal sem er staðsettur á Garðatorgi.

  • Bæjarstjórn Garðabæjar í Sveinatungu
    Bæjarstjórn Garðabæjar í Sveinatungu

Bæjarstjórn Garðabæjar fundaði í Sveinatungu í fyrsta sinn í gær, fimmtudaginn 21. mars.  Sveinatunga er heitið á nýjum fjölnota fundarsal sem er staðsettur á Garðatorgi.  Um árabil voru bæjarskrifstofur Garðabæjar til húsa í Sveinatungu sem var hús staðsett þar sem nú er bensínstöð og verslun við Litlatún og þar fundaði einnig bæjarstjórn á sínum tíma.  Það má því segja að nú sé fundað á ný í Sveinatungu. 

Í Sveinatungu eru auk fundarsalar bæjarstjórnar fjögur önnur fundarherbergi sem verða nýtt fyrir almennt nefndarstarf, starfsemi bæjarskrifstofu og annarra stofnana bæjarins. Einnig verður hægt að nota rýmið fyrir stærri fundi og kynningar með því að sameina fundarherbergi en við hönnun var hugsað fyrir því að hafa veggi færanlega.

Sjá einnig frétt hér um Sveinatungu. 

Fundir bæjarstjórnar eru opnir

Bæjarstjórn Garðabæjar fundar fyrsta og þriðja fimmtudag hvers mánaðar og fundir bæjarstjórnar eru opnir.  Íbúar er velkomnir að koma á fundi bæjarstjórnar og fylgjast með umræðu um málefni bæjarins. Fundarboð bæjarstjórnar eru ávallt birt á vef Garðabæjar tveimur dögum fyrir fund og fundargerðir bæjarstjórnar eru aðgengilegar á vefnum daginn eftir fund.  

Bæjarstjórnarfundur í Sveinatungu