15. nóv. 2019

Atvinnulóð í Molduhrauni í Garðabæ

Garðabær auglýsti nýverið til sölu byggingarrétt fyrir atvinnuhúsnæði á lóðinni Garðahraun 1 á athafnasvæðinu í Molduhrauni.

  • Gardahraun-1_loftmynd

Garðabær auglýsti nýverið til sölu byggingarrétt fyrir atvinnuhúsnæði á lóðinni Garðahraun 1 á athafnasvæðinu í Molduhrauni. Stærð lóðarinnar er um 15.000 m2 og liggur vestast í Molduhrauni við mörk Garðabæjar og Hafnarfjarðar. Heildar byggingarmagn er um 12.000 m2, í samræmi við nýtingarhlutfall lóðarinnar sem er 0,8 og skilgreint í ný endurskoðuðu deiliskipulagi Molduhrauns. 

Hér á vef Garðabæjar má nálgast upplýsingar um úthlutunarskilmála, skoða skipulagsuppdrátt fyrir svæðið o.fl.  

Tilboð í byggingarrétt á lóðinni skulu berast Garðabæ rafrænt í gegnum þjónustugáttina Minn Garðabær eigi síðar en 5. desember 2019.  Sjá nánar hér.