1. feb. 2020

Almannavarnarnefnd höfuðborgarsvæðisins fundaði með sóttvarnarlækni

Almannavarnarnefnd höfuðborgarsvæðisins kom saman föstudaginn 31. janúar sl. að beiðni sóttvarnalæknis. Tilefni fundarins var samræming og skipulag viðbragða við kórónaveirunni (2019-nCoV). 

  • Almannavarnarnefnd höfuðborgarsvæðisins fundaði með sóttvarnalækni.
    Almannavarnarnefnd höfuðborgarsvæðisins fundaði með sóttvarnalækni.

Almannavarnarnefnd höfuðborgarsvæðisins kom saman föstudaginn 31. janúar sl. að beiðni sóttvarnalæknis. Tilefni fundarins var samræming og skipulag viðbragða við kórónaveirunni (2019-nCoV). Sóttvarnalæknir fór yfir hlutverk höfuðborgarsvæðisins í viðbrögðum ef og þegar veiran kemur upp á Íslandi.

Í kjölfarið kom neyðarstjórn Garðabæjar saman til fundar föstudaginn 31. janúar sl. til að undirbúa samhæfingu viðbragða við kórónaveirunni (2019-nCoV).

Sóttvarnalæknir og Embætti landlæknis hafa lýst yfir óvissustigi vegna kórónaveirunnar. Garðabær hefur þegar hafið undirbúning að viðbrögðum vegna veirunnar sem felst m.a. í því að tryggja órofna þjónustu. Stjórnendur Garðabæjar verða í kjölfarið upplýstir um nauðsynlegar forvarnaraðgerðir og aðgerðir.
Sóttvarnalæknir og Almannavarnir ríkisins munu upplýsa almenning jafnóðum um þróun mála en þessir aðilar hafa yfirumsjón með viðbrögðum vegna veirunnar.

Allar nauðsynlegar upplýsingar um kórónaveiruna (2019-nCoV) og viðbrögð við henni má finna inn á vefsíðu Landlæknis www.landlaeknir.is