Útboð -Þorraholt -Gatnagerð og lagnir
Garðabær óskar eftir tilboðum í verkið: Þorraholt -Gatnagerð og lagnir.
Garðabær óskar eftir tilboðum í verkið: Þorraholt -Gatnagerð og lagnir
Verkið felst í nýbyggingu gatna fyrir nýtt íbúða- og verslunarhverfi í Þorraholti í Garðabæ.
Verkið nær til allrar jarðvinnu fyrir götur, gangstéttar, bílastæði, fráveitur og frárennsliskerfi. Einnig felur það í sér alla vinnu, bæði jarðvinnu og lagnir, við heitt og kalt vatn, fjarskipta- og rafmagnslagnir ásamt götulýsingu
Verkinu skal lokið fyrir 1.október 2023.
Helstu magntölur eru:
- Gröftur 21.900 m3
- Klapparskering 1.800 m3
- Fylling og burðarlög 19.600 m3
- Fráveitulagnir 1.675 m
- Hitaveitulagnir 1.715 m
- Vatnslagnir 650 m
- Strenglagnir – rafstrengir 2.800 m
- Ljósastólpar 37 stk.
- Gröftur lögnum og tjörn 9.480 m3
- Losun á klöpp í skurðum 1.500 m3
- Malbikun 1.735 m2
- Þökulögn 7.200 m2
Útboðsgögn er hægt að nálgast hér á vef Garðabæjar, mánudaginn 28. nóvember 2022.
Tilboð verða opnuð með rafrænum hætti á hjá Eflu hf, Lynghálsi 4, þriðjudaginn 13. desember klukkan 14.00.