Mosagata leiksvæði
3.6.2022
Óveruleg breyting á deiliskipulagi Urriðaholts vesturhluti
Mosagata leiksvæði
Óveruleg breyting á
deiliskipulagi Urriðaholts vesturhluti
Samþykkt: Á fundi bæjarstjórnar þann 7. apríl 2022 samþykkti
bæjarstjórn Garðabæjar samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010
óverulegabreytingu á deiliskipulagi Urriðaholts vesturhluti. Tillagan var
grenndarkynnt. Athugasemd barst og henni verið svarað
Gildistaka: Tillagan hefur öðlast gildi og var auglýst í B-deild
Stjórnartíðinda þann 2. júní 2022 nr. 657/2022 Í samræmi við 3. mgr. 41. gr.
skipulagslaga nr. 123/2010 er niðurstaða bæjarstjórnar hér með auglýst.
Tillagan gerir ráð fyrir að göngustígur frá Mosagötu að göngustíg á milli lóða við Mosagötu og
Holtsveg falli út ásamt leiksvæði. Um leið breytast mörk lóðarinnar Mosagata 4
sem stækkar til norðvestur.
Vakin er athygli á málskotsrétti
samkvæmt 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og lögum um úrskurðarnefnd
umhverfis- og auðlindamála nr. 130/2011 en þar kemur fram að
stjórnvaldsákvarðanir má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála.
Þeir einir geta kært stjórnvaldsákvarðanir sem eiga lögvarða hagsmuni tengda
þeirri ákvörðun sem kæra á. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu
skipulagsáætlana í B-deild Stjórnartíðinda.
Í samræmi við 2. mgr. 31. gr. og
3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er niðurstaða bæjarstjórnar hér með
auglýst.