• 30.8.2021, 17:00 - 18:30, Fjarfundur á Facebook

Íbúafundur: Víðiholt íbúabyggð og hesthúsahverfi í Breiðumýri - deiliskipulagstillögur - í beinu streymi

Mánudaginn 30. ágúst kl. 17 - 18:30 verður haldinn íbúafundur þar sem kynntar verða deiliskipulagstillögur fyrir íbúðabyggð í Víðiholti og hesthúsahverfi í Breiðumýri en báðar tillögurnar eru í forkynningu til og með 8. september 2021. Fundurinn verður í beinu streymi á fésbókarsíðu bæjarins.

Vegna samkomutakmarkana verður  fundinum verður streymt beint í gegnum fésbókarsíðu Garðabæjar.  Einnig er hægt að horfa á fundinn beint af vef Garðabæjar hér fyrir neðan.Hægt verður að senda inn rafrænar fyrirspurnir á meðan fundi stendur í gegnum útsendinguna á facebook (eða á netfangið skipulag@gardabaer.is ) og þeim verður svarað að lokinni kynningu.  Fundurinn verður tekinn upp og verður aðgengilegur á fésbókarsíðu Garðabæjar og vef Garðabæjar.

Bein útsending - íbúafundur - Víðiholt íbúabyggð - hesthúsahverfi í Breiðumýri

Auglýsing með tillögunum og öllum gögnum. Smellið hér.
Tillögurnar eru jafnframt aðgengilegar í þjónustuveri Garðabæjar, Garðatorgi 7.

VÍÐIHOLT ÍBÚÐABYGGÐ – tillaga að deiliskipulagi. Forkynning
Tillagan gerir ráð fyrir að íbúðarbyggð á 2-3 hæðum, alls 84 íbúðir í fjölbýli og raðhúsum, aðkomuvegi frá Breiðumýri og opnu svæði til norðvesturs. Einnig er lögð fram til kynningar fornleifaskráning fyrir svæðið.
Sjá gögn í auglýsingunni hér. 

HESTHÚSAHVERFI Í BREIÐUMÝRI – tillaga að deiliskipulagi. Forkynning
Tillagan gerir ráð fyrir hesthúsabyggð á Álftanesi en á svæðinu er ekki áður staðfest deiliskipulag.
Tillagan tekur m.a. á hesthúsabyggð, félagsheimili, reiðskemmu og reiðstígum en markmiðið með
deiliskipulaginu er að svæðið falli vel að nærliggjandi íbúðarbyggð.
Sjá gögn í auglýsingu hér. 

 Viðburður og útsending á fésbókarsíðu Garðabæjar.