• 27.2.2024, 17:30 - 18:30, Bókasafn Garðabæjar

Fróðleiksmoli um gervigreind - erindi með Steinar Örvari Bjarnasyni

Spennandi fræðsluerindi um framtíðina og gervigreind.

Steinn Örvar Bjarnarson sérfræðingur hjá upplýsingafyrirtækinu Advania heldur spennandi fræðsluerindi um framtíðina og gervigreind.
Steinn veltir fyrir sér hvaða möguleikar eru til staðar til þess að einfalda hið stafræna líf þar sem gervigreindin hefur aðgang að okkar helstu gögnum, svo sem tölvupósti og fleiru.
En einnig bendir hann á hætturnar í því samhengi því að gervigreindin er langt frá því að vera fullkomin og auðvelt er að falsa myndir og hljóðupptökur til þess að setja á netið.