10. nóv. 2017

Íbúar geta enn sent inn ábendingar vegna fjárhagsáætlunar

Fjölmargir íbúar Garðabæjar hafa sent inn ábendingar vegna fjárhagsáætlunargerðarinnar í gegnum ábendingaform hér á vef Garðabæjar. Ábendingarnar hafa verið af margvíslegum toga og varða hvaðeina sem snýr að starfsemi bæjarins.

  • Yfirlitsmynd af Flatahverfi
    Yfirlitsmynd af Flatahverfi

Fjárhagsáætlun Garðabæjar var lögð fram til fyrri umræðu á fundi bæjarstjórnar Garðabæjar fimmtudaginn 2. nóvember sl. Fjölmargir íbúar Garðabæjar hafa sent inn ábendingar vegna fjárhagsáætlunargerðarinnar í gegnum ábendingaform hér á vef Garðabæjar 

Ábendingarnar hafa verið af margvíslegum toga og varða t.d. ýmislegt í nærumhverfi, svo sem göngustíga, opin svæði, leiksvæði, íþróttasvæði, bætingu á lýsingu o.fl. en einnig ábendingar um gjöld, umferðarmál, sorpmál, frístundir, menningarmál og fleira.  Enn geta íbúar sent inn ábendingar varðandi fjárhagsáætlunargerðina fyrir árið 2018 og geta þær t.d. snúið að tillögum til hagræðingar í starfsemi Garðabæjar, nýjum verkefnum sem bærinn ætti að sinna, verkefnum sem leggja þarf áherslu á í starfsemi bæjarins.  Á milli umræðna í bæjarstjórn verður farið nánar yfir þær ábendingar sem berast frá íbúum. 

Gert er ráð fyrir að síðari umræða og afgreiðsla áætlunarinnar verði í bæjarstjórn Garðabæjar 7. desember nk.

Ábendingaform fyrir íbúa vegna fjárhagsáætlunargerðar 2018.

Frétt um fjárhagsáætlun 2018-2021.